Li|iana on Ice: Heilindapróf

« Home | Your element is Water: Understanding, intelligent,... » | Tíu litlir negrar » | Takk Ragga... » | Ég lofaði Árnýju víst að ég skyldi uppfæra þessa f... » | Úfff » | Spennufall » | Hátíðniofnæmi » | Blóðug leiðindi! » | Jamm » | Ekki dáin » 

laugardagur, október 01, 2005 

Heilindapróf

Í þessu prófi er eingöngu ein spurning, en hún er mjög mikilvæg. Ef þú svarar í fyllstu hreinskilni muntu komast að því hvernig siðferðiskennd þín er byggð upp. Í prófinu er velt upp algjörlega uppskáldaðri stöðu og þú þarft að taka afstöðu. Mundu að svarið verður að vera hreinskilið.



Vinsamlegast skrollaðu rólega niður og hugsaðu um hverja línu vel og vandlega.



Þú ert í Texas. Í Houston nánar tiltekið. Það ríkir í kringum þig mikið öngþveiti, því á hefur skollið mikill fellibylur og orsakað hræðileg flóð.




Þú ert ljósmyndari, þú vinnur hjá stóru dagblaði og ert í miðju þessarar hryllilegu hringiðu.





Staðan er svo að segja vonlaus.





Þú ert að reyna að taka bestu myndir ferils þíns.





Það er brak úr húsum og fólk allt í kringum þig, fljótandi í vatninu. Sumir dragast undir og koma ekki aftur upp. Náttúran sleppir lausum eyðileggjandi krafti sínum. Allt í einu sérðu mann berjast um í vatninu nálægt þér. Hann berst fyrir lífi sínu og reynir á örvæntingarfullan hátt að halda höfðinu upp úr vatninu. Þegar hann flýtur nær þér finnst þér að þú eigir að kannast við hann.







Það rennur allt í einu upp fyrir þér hver hann er.





Þetta er George W. Bush!





Á sama tíma sérðu að ólgandi vatnið er um það bil að færa hann í kaf... að eilífu.





Þú hefur tvo valmöguleika:





Þú getur bjargað lífi G.W.Bush,





Eða





Þú getur tekið myndir sem myndu án efa vinna þér inn Pulitzer verðlaun. Myndir, sem sýna dauða valdamesta manns í heiminum í dag.







Svo hér kemur spurningin, og mundu að þú verður að svara henni í fyllstu hreinskilni:








Hvort myndirðu velja hágæða litafilmu eða klassískan einfaldleikann sem svarthvítar filmur bjóða upp á?

FRUSS!!!

Svart-hvíta

Bwahahahahahahahaha!

Með þínu auðfúslega leyfi ætla ég að ræna þessu af þér og skella þessu á mitt blogg enda er þetta SNILLD :D

Kveðja

Geitin

Skrifa ummæli